
Hann Lalli minn komst heldur betur í feitt um daginn, þegar hann uppgötvaði þetta líka forðabúr, rétt fyrir utan íbúðina sína :) Ég er búin að bíða eftir að hann finni þetta, en þetta er í fyrsta og eina skiptið sem ég hef sé hann gæða sér af gnægtarborðinu. Hann hefur það annars ljómandi gott um þessar mundir, er búinn að vera þvílíkt kelisjúkur undanfarið, eltir mig um allt, ef ég fer á klósettið bíður hann fyrir utan og á kvöldin þegar við erum að horfa á sjónvarpið, situr hann við hliðina á mér og starir á mig og ef það dugar ekki, hnippir hann í mig þangað til hann fær kjass! Hann verður sjálfsagt feginn greyið þegar snjóa leysir og hann getur farið út.
Það er nefnilega allt á kafi enn hér í sveitinni, þó hafi bráðnað mikið undanfarið, þá var bara svo rosalega mikill snjór til að byrja með, að það tekur langan tíma að losna við allt. En sveitungarnir segja að vorið komi alltaf um páskana, sama hvenær þeir séu, svo það er lofandi :)
Ég ætlaði að vera svo dugleg um páskana, gera vorhreingerningu í eldhúsinu, en rann á rassinn með allt, ég er búin að vera kvefuð og slöpp, svo það verður að bíða betri tíma. Ég tók mig þó til í dag og pantaði pappírtunnu hjá Renovasjonsetaten, við höfum hingað til nýtt okkur gám sem stendur við búðina, sem er fínt fyrir stærra pappírsrusl, en það er pínu þungvinnt að keyra hverja einustu fernu 1,5 km í gáminn.. Þetta safnast bara upp í bílskúrnum í staðinn (eftir að hafa staðið í viku á eldhúsbekknum.. urr..). Ég hélt að kannski okkur stæði ekki eigin tunna til boða af því við búum útúr (dró þá ályktun þar sem var engin svona tunna hér fyrir, hvorki hjá fyrrverandi eigendum eða nágrönnunum), en það er náttúrlega bara vitleysa, það kemur hvort eð er ruslabíll hér 1x í viku að tæma hitt ruslið. Ok, þetta voru spennandi fréttir dagsins! ;)
Ps: Strákurinn hjá Renovasjonsetaten hringdi tilbaka seinna um daginn og er víst ekki hægt ad fá pappírstunnu hér í Sørkedalen... :(